No man is an island..

Kittu-land

23.07.2008 20:09:27 / Kristjana

Síðasta bloggið...

Tíu hlutir sem ekki margir vita um mig, og eru eiginlega bara sérviska...:)
1. Ég þoli ekki þegar fólk vorkennir mér.
2. Ég elska að lesa spennubækur og sérstaklega eftir Arnald Indriðason.
3. Ég er með fóbíu fyrir tám, veit ekki afhverju, það er bara þannig:D
4. Mér finnst actually gaman að læra, dýrka að læra eitthvað nýtt, já ég veit ég er nöörd:)
5. Ég vil gera hlutina sjálf, og ef ég þarf hjálp, að þá á ég voðalega erfitt með að biðja fólk um að hjálpa mér.
6. Ég sef alltaf með tvo kodda, einn stórann og annann lítinn sem kallast svæfill og er fyrir litlu börnin:) 
7. Ég er óstjórnlega hrædd við annara manna dýr, eins og hunda, ketti, kanínur, naggrísi og fl.
8. Ég vil aldrei gifta mig, er einfaldlega aalltof hrædd við að binda mig svona mikið.
9. Ég kann ekki að taka hrósi, verð alltaf geggjað vandræðaleg og veit ekkert hvernig ég á að vera..
10. Ég haaata þegar fólk segir sorry við mig þegar það er að biðjast afsökunnar á einhverju miklu, það á einfaldlega að segja fyrirgefðu...

Jæja þá er það komið.. langaði að koma með eitthvað öðruvísi blogg, svona í tilefni af því að ég ætla að slútta þessu, þetta erum sem sagt tíu hlutir um mig sem ekki margir vita, en ábyggilega einhverjir;)

Og af því að þetta er mitt síðasta blogg að þá vildi ég bara þakka þeim sem lásu öll bloggin og nenntu að kommenta:)

Kitta is out forever and ever:)

» 4 hafa sagt sína skoðun

28.04.2008 20:54:26 / Kristjana

lífið og tilveran

Jæja hef svo sem ekkert mikið að segja.. ekkert gerst hjá mér, sem er allagötu ekki frásögu færandi.. langaði bara að tilkynna að ég eiginlega ekki að nenna að halda uppi þessu tilgangslausa bloggi um mitt tilgangslausa og innantóma líf.. það gerist hvort sem er aldrei neitt það voðalega merkilegt hjá mér þannig...:S

Ætla bara að ljúka þessu með því að óska Pabba;**, Önnu Þóru;**, og Arnóri;** til hamingju með afmælið sem voru þann 20, 23, 25 apríl:) til lukku með það;)

Jæja segji þetta gott um óákveðinn tíma;) Munið að reyna alltaf að líta á björtu hliðarnar á málunum, þó það virðast ekki vera neinar, þá eru alltaf einhverjar!! munið það;)
Kveð í bili

» 2 hafa sagt sína skoðun

31.03.2008 18:48:44 / Kristjana

Blogg.. blogg

 Góðan daginn allir saman..:D Ég afsaka bloggleysið, hef bara ekkert mikið að segja, er bara ekki gert neitt merkilegt til að segja frá... þannig ég ætla bara að hafa þetta nokkra punkta...

• 14.mars.. Brúsinn var... ég og Guðrún spiluðum saman og held að okkur hafi bara gengið ágætlega.. vorum samt klóraðar af nokkrum ónefndum aðilum oog eitt skiptið þáá vorum við meira að segja klóraðar án þess að kamburinn hafi verið unninn:haha: Jáá páskafríið byrjaði líka hérna gjööööðveikt það:P

• 15. Mars.. Afmælið Önnu og Jónka.. Hevvíí stuð þar skoo.. var samt orðin frekar drukkin verð að viðurkenna það.. hehh.. man ekkert voðalega mikið eftir því kvöldi þannig ehh jáá..:$

• 21. Mars(föstudagurinn langi).. ég var bara að keyra þetta kvöld.. nennti engann veginn að fá mér í glas þáá, þannig ég fékk bara að keyra fína Yarisinn hennar Önnu Heiðu:D úff hvað ég drap oft á honuum.. hehh held að Rebekka hafi verið farin að skammast sín hahaha:haha: en ég meina þetta kemur fyrir besta fólk hehh.. fór samt ekkert á barinn var bara á rúntinum með Daníel og Rebekku..;)

• 22.mars.. Vinna kl. 2 jeijjj... það er allagötu ekki frásögu færandi..;) svooo um kveldið fékk ég mér þrjá bjóra og rúntaði helling með Önnu Heiðu:D þakka það..:P

• 23. Mars.. jeiijj páskadagur... hahaha... gerði bara nákvæmlega ekki neitt.. þá er ég skoo að meina EKKI NEITT!!!! Hehh.. letin alveg í hámarki..:S

• 26. Mars.. oohhh skólinn byrjaði aftur.. ekkert skemmtilegt að segja um það..

• 29. Mars.. byjaði á því að fara að vinna kl hálf 10 það var reyndar bara alveg skemmtilegur vinnudagur.. Svoo um kvöldið var haldið heim til Kristínar Svövu, sem átti afmæli.. Innilega til hamingju með það elskan;) svoo eftir að hafa drukkið bollu og borðað MIKIÐ af jarðarberjum sem voru í bollunni þáá var haldið á Bakaríið.. Jáá flooottt.. við skulum ekkert ræða það eitthvað.. var samt alveg geggjað stuð og skemmti mér alveg konunglega skoo..;)

Eeenn jáá allagötu þáá held ég að ég séi bara komin með þetta allt saman..:P Tek það sérstaklega fram að ég er hætt að drekka í óákveðinn tíma..;) oooog þakka öllum þeim sem hafa lesið..

Kitta kveður í bili

» 5 hafa sagt sína skoðun

13.03.2008 22:35:03 / Kristjana

Afmælii:P

jæja langaði bara að óska honum Jónka bró til hamingju með afmælið;) bara loksins orðinn 20:D

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 17:06:17 / Kristjana

Don't worry, be happy..:)

jæja ætla ekkert að koma með neitt blogg sko... hef nákvæmlega ekki neitt að segja, langaði bara til að óska Önnu systur til hamingju með afmælið;**
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Anna hún á afmæli í dag;)

og svoo langaði mig einnig að óska óskari til hamingju bæði með bílprófið og afmælið í gær;)

kveð í bili...

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 13:06:40 / Kristjana

ehhh...

Jiii hvað minn litli heili höndlar engar svona fucked up breytingar.. hehh.. ég skil bara eki baun í þessu haha.. þess vegna hef ég ekki nennt að blogga, auk þess að ég hef bara ekkert markverðt að segja..  mest lítið hefur gerst núna undanfarið, nema skóli og aftur skóli.. er samt eiginlega að verða frekar þreytt á þessum blessaða skóla... er búin að vera í skóla síðan ég var sex ára og held að ég séi að verða komin með minn skammt í bili... þetta eru að verða tólf ár!! þrír skólar á tólf árum..jiiiii hvað ég er orðin gömuul..:S líst bara engan vegin á blikuna.. tíminn líður svoo hratt að maður hefur varla undan...
Heyrðiði ég vil helst ekkert vera að pæla í þessu.. annars lýður mér bara illa og má ekki við því þessa stundina... Er bara að hugsau um að fara niður á vist og læra fyrir lífeðlisprófið á morgun....
Heyrumst..;);)

» 7 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 21:30:50 / Kristjana

=) SMILE (=

Jæja nennii ekki að blogga.. langaði bara svona rétt svo að láta vita af mér.. Skólinn er alveg á fullu.. Þorrablótið á morgun;) ííhaaa:D Sjallinn næsta laugardag..;P oog eftir það held ég barasta annað þorrablót:haha: Allagötu ætla að segja þetta gott í bili;)

  ----Adios----


» 12 hafa sagt sína skoðun

06.01.2008 22:48:05 / Kristjana

So this is christmas..

óóójáá nú eru jólin búin... eða það má segja að það séu klukkutími og nokkrar mín. en ég meina hver er að telja. Jólin og áramótin voru bara ósköp róleg, var bara að vinna alveg á fullu, fékk svona allt í allt 3 daga í frí:haha: en ég meina það er nú allt í góðu sko. svo bara á morgun byrjar skólinn, ég fer og tala við simma og fá lykilinn af herberginu mínu.. og jáá þið lásuð rétt, mín er að fara að flytja á vistina, og spurning um hvernig það á eftir að verða! ég er nú að vona pínu að þetta verði gaman, þekki orðið fullt af fólki og svona en það líklega kemur bara í ljós, og svo reikna ég með að keyra svona eitthvað á milli líka, annars verð ég alveg kúkú í hausnum haha, nei nei segi bara svona. Svo hefst þetta bara fyrir alvöru. Ég er samt alveg búin að ákveða það, að ef ég er ekki að fíla mig á náttúrufræðibraut, þá nenni ég þessu engan veginn, þáá ætla ég bara að taka mér a.m.k. eina önn í frí, en ég meina það kemur bara í ljós. Ég er að pæla í að segja þetta bara gott, óska bara öllum gleðilegi og farsældar á nýja árinu;) verði svo bara róleg og haldið ykkur til hlés, þvííí þorrablótið er innan skamms:haha:

Ég kveð í bili;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 22:05:33 / Kristjana

Jólasveinninn kemur í kvöld...

Jáá kæru vinir nær og fjær.. nú eru jólin bara alveg að bresta á.. minna en vika þanngað til, og það eina sem ég er búin að afreka er að skrifa á nokkur jólakort.. ekki meira.. er reyndar að fara í klippingu og litun á morgun og plokk og lit líka, þannig ég ætti að geta keypt flest allar jólagjafirnar þá=)

Annars er bara búið að vera rólegt hjá mér. Prófin eru búin, féll bara í tveimur fögum að ég held(á eftir að fá út úr einu fagi, nokkuð viss um fall í því;) hehh.. og ná restinni sem er að ég held 4 fög;) nokkuð ánægð með það bara:Þ jáá og svo byrjaði vinnan á laugardaginn, var reyndar bara að vinna stutta morgunvakt, þannig það var bara tekið rólega:) og svo fór ég bara heim og lagaði til í bílnum mínum, nokkur glerbrot á gólfinu aftur í, því pabbi hafði sett brotnu ljósin þar, oog jáá fyrir ykkur sem ekki vita það þáá er drossíían komin í lag, eftir þessa "glæsilegu" klessu:^)  er bara hefvíí ánægð með það, eins og Kjartan frændi orðaði þetta, mér myndi líða eins og ég væri nakinn, ef ég væri án bílsins míns. og eftir því að dæma þáá er ég komin í föt núna;) hehe jáá ooog svo um kvöldið þá voru litlu jólin í kaufélaginu8) Gééðveikt stuð:Þ borðuðum geggjaðan mat og svo var bara spjallað og drukkið og spjallað að eins meira:) og svo voru pakkar og svo var drukkið aðeins meira og spjallað líka:D hihi og svo var bara haldið á Bakaríið, svo um 3 leytið um nóttina ætlaði mín bara í bæinn og læti, var búin að vera að reyna að redda mér fari og gistingu.. en enn nei það var hætt við það..

sunnudagurinn einkenndist af ógleði og jólasveinum, bingói og tónleikum... ekkert sérlega góð blanda það.. hehh..:haha:

en allagötu ég er farin að gera eitthvað annað en að blogga..  fariði gætilega í jólagjafainnkaupin, því það skiptir ekki máli hversu stór gjöfin er, heldur hugurinn sem skiptir máli.. 

Kitta sem er að fara í klippingu:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 22:18:05 / Kristjana

Allt sem gerist..

.. gerist af ástæðu. Er það virkilega þannig?? Gerast hlutir bara af því það er einhver ástæða á bakvið allt?? Það hefur til dæmis margt gerst hjá mér sem ég skil ekki alveg hvernig það gæti verið einhver ástæða fyrir.. eða ég sé það allagötu ekki.:S  eða er lífið bara þannig að ef það gerist eitthvað gott, þá gerist eitthvað slæmt.. og öfugt..:| allagötu skil ég ekki alveg allt sem gerist.. getur maður aldrei átt eitthvað gott án þess að það gerist eitthvað slæmt:S og líka afhverju lærir maður ekki af mistökum.. þetta er eins og stinga hendinni aftur og aftur inní eldinn en vitandi það að maður brennir sig:S

Gvööð hvað ég hef greinilega ekki gert neitt um helgina:S hehh held bara að ég hafi haft ALLT og mikinn tíma til að pæla í hlutunum haha:D en jáá það sem er annars að frétta af mér er ósköp lítið, er búin að vera veik alla helgina, prófin eru byrjuð, síðasta vika var hreint út sagt skrautleg;) lenti nefnilega í því óskemmtilega óhappi að klessa á föstudaginn þar síðasta.. hehh toyotan er í góðu lagi, utan við það að pabbi þurfti að rétta húddið og svoo þar að redda alveg nýjum ljósum og grilli hehh en það hlýtur að koma bara..

úff trúi þið þessu jólin eru alveg að koma:O ég er bara ekki alveg að fatta þetta.. er ekkert farin að pæla í jólagjöfum:/ æ æ æ það hlýtur að reddast.. það gerir það alltaf;P En allagötu þáá ætla ég að slútta þessu nóg komin í bili..

Passið ykkur á að brenna ykkur ekki um og of, því það eru nú einu sinni að koma jól,

--Kitta--


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 20:25:03 / Kristjana

Fljúgandi furðuhlutir.. þar á meðal bíll.....

Jæja núú er svoo komið  að ofur Toyotan mín&mömmu&pabba.. mest mömmu og pabba en hvað um það.. farin að fljúga... ég er líka nokkuð viss um að hún haldi að hún séi orðin lifandi, gangandi, og ódauðleg í þokkabót... hún tók nefnilega upp á því að fljúga upp á gangstétt á dalvík þegar ég var að fara að skutla Guðrúnu og Jonna heim... ég meina þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta gerist og pottþétt ekki í það síðasta.. svo er ég farin að halda að hún séi orðin frekar árásargjör.. reyndi að keyra niður eitt stykki bíl á ak fyrir nokkru síðan ég meina henni ætti nú ekki að vera ógnað þetta var bölvuð drusla sem hún keyrði næstum á.. gat varla forðað sér undan ofur Toyotunni minni... það varð bara þessari druslu til happs að græna ljósið skildi kvikna..;) En það er núú spurning hvort þetta séi virkilega Toyotan með alla sína reynslu af allskonar færi og veðrum, eða hvort þetta séi reynslulausi apakötturinn sem situr undir stýri?? svari nú hver fyrir sig..

Kitta kveður með þáá von í brjósti um batnandi veður;)


» 16 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 23:28:27 / Kristjana

jææjja..

jæja nú koma helstu atriðin liðinna daga..

  • Gangnaballið tekið með trompi.. og síðan skólinn daginn eftir..:S
  • Bílprófið tekið 11 september..;) hihi snilld:D
  • Skólinn aaaaalveg á fullu...:/
  • Mikill skandall búinn að gerast í öllu sem ég geri;) haha neii segi bara sona:P
  • keyra nokkrum sinnum fyrir fullt af liði..:D sumt sem gerðist misskemmtilegt..:haha: 
  • Stóðréttaballið.. snilldin ein.. :P var bara að keyra í allri hálkunni:P
  • Síðasta helgi var bara tekin á rúntinum á akureyri.. Gestur að keyra.. það var bara hevíí stuð..
  • og helgin núna verður skohh vonandi ekkert síðri;)
  • eeeenn núna er ég að pæla í að segja þetta gott nenni bara ekki meiru þannig.. skemmtið ykkur vel um helgina og farið svo hóflega í drykkjuna;) bleeeee

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 19:48:38 / Kristjana

veseeen

Sko fékk bara svona óstjórnanlega löngun til að blogga, veit eiginlega ekki afhverju, því ég hef ekki frá neinu að segja... Skólinn er að fara að byrja í næstu viku, shit hef ekki hugmynd um hvernig ég fer á milli..:S og já Fiskidagurinn er búin, var reyndar að vinna frá 2 til hálf 7 þannig ég missti bara af öllu sem gerðist..  reyndi nú að vera eitthvað vakandi um kvöldið og tókst það bara undarlega vel, held að rigningin hafi hjálpað mér mikið..:D:D hitti fullt af fólki sem ég var með í tímum í vma og vá hvað það var gaman að hitta alla..:D en já Rebekka, Guðný og Ninja takk fyrir æðislegt kvöld.. og já ekki má gleyma ananasinum...;) en já hef ekkert að segja svo sem er búin að falla 2var á bóklega.. ekki það að ég kunni þetta ekki, ég er bara að gera fullt af klaufavillum..:S en já það er víst að styttast í göngur og á ekki von á bloggi fyrr en eftir þær..;)

þangað til bææ:*


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 00:21:10 / Kristjana

Jæjjaa....

Tími til kominn..;) Mest lítið hefur verið að gerast hjá mér núna undanfarið.. Vinna og aftur vinna:S er reyndar farin að hlakka til þegar versló verður er nebblega í fríi þá og ætla að reyna að fara í bæinn..:P hehh með hverjum er bara seinni tíma vandamál...:D Hef reynar ekkert að segja svo sem, Siggi bróðir er komin norður, Begga frænka er komin og farin:(  og já svo er bara farið að styttast í fiskidaginn, þá verður sko brjálað stuð;) ég og eva vorum eitthvað að tala um að við ættum að fara hittast aftur, þá Ása, Eva og ég.. veit nú ekkert hvort það verði eitthvað úr því, ætli það verði ekki eins og í öll hin skiptin sem við höfum talað um að hittast, verður ekkert úr því...:S

jæja ég þarf að fara að sofa, vinna kl. 9  þarf að vakna snemma...:S hehh en já að ég held þá er bóklega bílprófið 2. ágúst, veit samt ekki alveg, hef ekkert heyrt í Jóni Konn þannig.....:S en í bili þá segi ég bara bless og ekkert stess..;) (úff hvað þessi setning var leim:haha: )

Kittaa

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 23:36:27 / Kristjana

Krissa fúla.....

Núhh er ég virkilega fúl.. var búin að skrifa dálítið langa færslu... Long story short... ég er búin að fá spangir, Íslandsmótið í hestaíþróttum er um helgina, mikið að gera í búðinni, og um næstu helgi kemur Kristín elsku hjartans dúllan mín norður og þá verður skohh djammað..;) annars nenni ég ekki að blogga meira...Adios my friends  

Kitta fúla ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9